Fyrir fimm árum síðan (ég trúi því samt ekki að það sé svona langt síðan) fór ég, nýbökuð móðir, á námskeiðið Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða, hjá henni Ebbu Guðnýju. Námskeiðið var frábært og ennþá í dag er ég nýta mér góð ráð sem hún Ebba kenndi okkur á námskeiðinu. Ég er allavega ekki hissa á að námskeiðið gangi enn og bækurnar hennar rokseljist. Hún kenndi mér á einni kvöldstund meira um næringu ungbarna og mataræði almennt en ég hafði nokkurn tímann náð að lesa um í bókum sem ég hafði þó gert þó nokkuð af á meðgöngunni. Að ég tali nú ekki um öll frábæru og sniðugu ráðin sem hún gaf námskeiðsgestum um hitt og þetta. Ég mæli heilshugar með því að þið skellið ykkur á námskeið hjá henni ef þið sjáið það auglýst og eiginlega hvort sem þið eigið ungt barn eða ekki. Góðu ráðin og uppskriftirnar nýtast öllum á heimilinu. En jæja, á þessu umrædda námskeiði gaf Ebba okkur ýmislegt gómsætt að smakka og þar á meðal var dásamleg súkkulaðimús. Hún sagði okkur ekki hvað var í henni fyrr en eftir smakkið og ég ætlaði ekki að trúa því að súkkulaðimús samsett úr lárperu og banana ásamt örfáum öðrum hráefnum gæti smakkast svona guðdómlega vel. En hún gerði það svo sannarlega og hefur verið hér á borðum ótal sinnum eftir þetta og er alltaf jafn yndislega góð. Ég er því miður búin að týna upprunalegu uppskriftinni frá Ebbu svo músin mín hefur aðeins breyst og þróast. Svona geri ég hana oftast og hvet ykkur eindregið til að prófa!
- 4 litlar lárperur eða 2 stórar (ég nota þessar í græna netinu)
- 2 þroskaðir bananar
- 4 msk fljótandi kókosolía
- 4 msk gott kakó
- 4 msk hunang, hlynsíróp eða önnur sæta (má vera minna, smakkið ykkur áfram)
- 1/2 tsk hreint vanillu extract
- 1/4 tsk sjávarsalt
Aðferð: Lárperur og bananar afhýtt. Allt sett í blandara eða matvinnsluvél og unnið vel saman þar til silkimjúkt og slétt. Mér finnst betra að nota matvinnsluvél en blandara en ef þið notið blandara gæti þurft að setja örlítið vatn eða mjólk til að vélin nái að hræra allt vel saman. Setjið í skálar og kælið í 1 klst. Berið fram með þeyttum rjóma, rifnu 70% súkkulaði og gjarnan ferskum berjum.
berglindolafs
Hlakka til að prófa þessa uppskrift – súkkulaðimús er einn af uppáhalds-eftirréttur unglingsins
helenagunnarsd
Voða skil ég unglinginn þinn vel. Súkkulaðimús er bara svo góð! Gott að luma á einni svona örlítið hollari útgáfu til að gæða sér á 😉
siggahuld
Ætla svo sannarlega að prófa þessa uppskrift í dag. Á fullt af banönum en þarf að kaupa lárperurnar. Hlakka svo til að borða þetta í eftirrétt í kvöld.
heida
vanilluduftið hvíta sem fæst í bónus, framleitt af þeim, er verið að tala um svoleiðis vanillu í þetta? 🙂
helenagunnarsd
Sæl Heiða
Ég held örugglega að þú sért að tala um vanillusykur. Ég hef ekki notað svoleiðis í þetta. Ég nota venjulega hreint vanilluextract (pure vanilla extract) sem ég kaupi í Kosti, fæst líka í fleiri verslunum t.d Hagkaup. Svo er líka gott að nota hreint vanilluduft sem fæst í heilsubúðum. Örugglega hægt að redda sér með venjulegum vanilludropum eða vanillusykri en mér þykir hitt mun betra á bragðið 🙂
Kær kveðja, Helena
Nafnlaust
Er ekki í lagi að sleppa banananum?
helenagunnarsd
Ég hef ekki prófað það.. Hann gefur smá fyllingu og auðvitað sætt bragð. En ég hugsa að þú getir alveg bætt aðeins meira avocado við og sett eins og 2-3 döðlur saman við. Kemur örugglega svipað út 🙂
Kær kveðja, Helena
María
Er hægt að gera þennan búðing kvöldinu áður en hann er snæddur ??
helenagunnarsd
Sæl María
Ég hef sjálf ekki prófað það, geri hann þó oftast um 4-6 tímum áður en hann er borinn fram og það er mjög gott 🙂 Hann þarf allavega að standa í a.m.k klst í ísskáp. Gangi þét vel.
Kær kveðja, Helena