Ég ætlaði að byrja þennan pistil á: ”svei mér þá ef það á ekki bara að fara að skína sól á okkur um helgina”.. Svo álpaðist ég til að opna vedur.is og þar stóð sannleikurinn blákaldur og ósykurhúðaður. En mér er alveg sama enda ekki vön að láta veður fara í skapið á mér.. svona oftast allavega. Ég bauð foreldrum mínum í mat í vikunni, nánar tiltekið á þriðjudaginn, í þriðjudagslægðinni. Þá var ætlunin að grilla þessi gómsætu kjúklingalæri og var sú ákvörðun tekin áður en sumarblómin mín tóku á flug og dúkurinn á borðinu fauk af. Þá var plani B hleypt á stokkana og bakarofninn fékk þann heiður að baka herlegheitin. Það var alls ekki síðra. Svo þið getið annað hvort grillað lærin eða bakað þau eins og ég gerði. Galdurinn er bara að maka reglulega á þau þessari himnesku barbecue sósu svo þau verði klístruð og bragðmikil.
Bragðmikil barbecue kjúklingalæri (fyrir 4-5):
- 1 kg úrbeinuð kjúklingalæri (líka hægt að nota læri með beini)
- 3 dl góð bbq sósa
- 1 dl apríkósumarmelaði
- 2 msk soja sósa
- 1 hvítlauksrif rifið eða smátt saxað
- 1 msk smátt saxað eða rifið engifer
- 1 sítróna, skorin í báta
Aðferð: Hrærið saman bbq sósu, apríkósusultu, soja sósu, hvítlauk og engifer og hellið helmingnum yfir kjúklingalærin. Látið marinerast a.m.k í 30 mínútur í ísskáp. Hitið ofn í 220 gráður. Raðið lærunum á pappírsklædda bökunarplötu, stingið sítrónubátunum hér og þar og bakið í 10 mínútur. Takið þá út og penslið lærin með meira af barbecue sósunni og bakið aftur í um 8 mínútur. Takið þá aftur út, penslið meira af sósunni á og bakið áfram í um 8 mínútur eða þar til lærin eru elduð í gegn. Hækkið hitann eins hátt og ofninn ykkar kemst eða setjið grillið á síðustu mínuturnar til að sósan karameliserist á lærunum. Berið fram t.d með salati, kúskús og kaldri hvítlaukssósu.
Vala
Æðislega góð uppskrift! Sló í gegn 🙂 Ég var með krydduð hrísgrjón með gulum bænum í staðinn fyrir kúskús og það passaði mjög vel með.
helenagunnarsd
En gaman að vita. Krydduðu grjónin hljóma afar vel 🙂 Takk fyrir kveðjuna Vala!
Kær kveðja, Helena