• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Einfalt sumarsalat með brokkolí, jarðarberjum og piparosti

maí 6, 2013 by helenagunnarsd 2 Comments

min_IMG_2275Ég veit ekki með ykkur, en ég er alltaf í leit að einhverju góðu meðlæti. Þegar kemur að svona þessari daglegu eldamennsku vefst oft fyrir mér hvað ég ætti nú að útbúa til að hafa með kjötinu, eða fiskinum eða hverju því sem á boðstólnum er. Mér finnst sérstaklega þægilegt að geta klárað að gera meðlætið áður en ég elda aðalhráefnið og þurfa ekkert að hugsa um það meir. Núna þegar sólin er farin að skína og hitastigið örlítið farið að hækka er grillið oft dregið fram hér á heimilinu og þegar grillað er á virku kvöldi þegar allir eru svangir og þreyttir þurfa hlutirnir að gerast hratt!

Ég var með grillaða kjúklingaleggi á dögunum og með þeim bar ég fram þetta einstaklega sumarlega og matarmikla salat, sem ásamt kaldri sósu, stóð alveg eitt og sér sem meðlæti með kjúklingaleggjunum. Það þarf nefnilega ekki alltaf að vera að flækja hlutina krakkar mínir. Þetta er nú varla hægt að kalla uppskrift heldur meira upptalning á hráefnum, en gott var það. Og kannski eru einhverjir fleiri en ég þarna úti sem vantar alltaf hugmyndir að meðlæti.. aldrei að vita. Ég verð líka að koma því að hvað jarðarber og svartur piparinn í piparostinum passa einstaklega vel saman. Prófiði bara

min_IMG_2265Sumarlegt salat með brokkolí, jarðarberjum og piparosti (Meðlæti fyrir ca. 4-5):

  • 1 höfuð Lambhagasalat, frekar smátt skorið
  • 1/2 rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar
  • 1 msk hvítvínsedik
  • 1 avocadó, skorið í litla teninga
  • 1 lítið höfuð brokkolí, hlutað niður og skorið í litla munnbita
  • 1 bakki jarðarber skorin í fjóra hluta
  • 1 pakki rifinn piparostur
  • Ólífuolía, svartur pipar og smá sjávarsalt

Aðferð: Byrjið á að skera rauðlaukinn í þunnar sneiðar, setjið í skál og hellið yfir hann 1 msk af hvítvínsediki og hrærið af og til í lauknum meðan restin af salatinu er útbúið. Við þetta mýkist laukurinn, verður aðeins sætari og ramma laukbragðið hverfur. Blandið öllu hinu saman í stórri salatskál og setjið laukinn síðast saman við, ásamt edikinu. Hellið smá ólífuolíu yfir og sáldið örlitlu sjávarsalti og nýmöluðum svörtum pipar yfir. min_IMG_2280

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Fljótlegt meðlæti, Gott meðlæti, Gott salat, Meðlæti uppskrift, Salat uppskrift, Sumarlegt salat

Previous Post: « Timían kjúklingur með stökku beikoni og sveppum
Next Post: Gratineraður fiskur með blómkálsgrjónum »

Reader Interactions

Trackbacks

  1. Lauflétt agúrkuhrásalat | Eldhúsperlur skrifar:
    júní 5, 2013 kl. 14:57

    […] en ég tek við að grilla eða elda þann mat sem á að vera á borðum eins og ég talaði um hér um daginn. Ég er kannski dálítið nýjungagjörn þegar kemur að salötum og meðlæti en mér […]

    Svara
  2. Nokkrar sumarlegar uppskriftir | Eldhúsperlur skrifar:
    apríl 24, 2014 kl. 17:04

    […] með jarðarberjum og smá chilli. Getur verið meðlæti, smáréttur eða forréttur. Bara gott.Jarðarber í salati eru yndilslega góð. Hérna fá þau að leika sér við rifinn piparost og grænmeti. Frábært og einfalt […]

    Svara

Skildu eftir svar við Lauflétt agúrkuhrásalat | Eldhúsperlur Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme