Við fjölskyldan höfum nú siglt inn í langþráð sumarfrí. Eða að minnsta kosti Heimir og Gunnar Þór. Ég er svona með annan fótinn í fríi og hinn við tölvuna en stefni þó á að taka mér hressilegt, ósvikið og dásamlegt alvöru frí innan skamms. Þar sem þetta var formlega séð fyrsti sumarfrísdagurinn þótti mér feykigott tilefni til að hafa þennan gómsæta hamborgara sem er í miklu uppáhaldi hér á heimilinu. Fróðara fólk en ég myndi kannski kalla þetta samloku frekar en hamborgara. En þar sem ég er bara alls ekki svo vel að mér í hamborgarafræðum eða mikið að pirra mig almennt yfir ýmiskonar skilgreiningum á því hvað matur er kallaður þá er mér bara alveg sama hvað þetta er kallað. Gott er það og einstaklega fljótlegt í eldun, það er nóg fyrir mig. Mér finnst líka alveg upplagt að bera kjúklingaborgarann fram án brauðs og hef þá gjarnan eitt spælt egg með í staðin fyrir brauðið. Rétturinn getur því vel verið vænlegur fyrir þá sem vilja skera niður kolvetni eða brauðmeti í sínu mataræði.
Uppskriftin er nú ekki flókin en það eru svona nokkur atriði sem mér finnst ómissandi við gerð borgarans. Krydd lífsins frá Pottagöldrum finnst mér nauðsynlegt til að krydda kjúklingabringurnar með, það er ein af mínum uppáhalds alhliða kryddblöndum og alveg upplögð að nota þegar maður vill fá mikið bragð og smá svona steikhússtemmningu í matinn. Annað sem er ómissandi er að nota góðan ost ofan á herlegheitin og þá finnst mér Maríbo osturinn langsamlega bestur. Gott beikon, vel þroskað avocado, stökkur rauðlaukur og eldrauðir tómatar breyta þessu svo í veislumáltíð.
Beikon- kjúklingaborgari með osti og sinnepssósu (fyrir 4-5):
- 3 kjúklingabringur
- 12 sneiðar beikon
- Góður ostur sneiddur í þykkar sneiðar – ég nota Maríbó ost
- Krydd lífsins frá Pottagöldrum
- Hamborgarabrauð eða spælt egg (eða bæði fyrir þá sem vilja það!)
Sinnepssósa:
- 4 msk majónes
- 2 msk ab mjólk eða hrein jógúrt
- 1 msk grófkorna dijon sinnep
- 1 msk hunangs dijon sinnep eða venjulegt dijon sinnep
- Svartur pipar eftir smekk
Ofan á hamborgarann:
- Gott íslenskt lambhagasalat eða salatblanda
- 2 Eldrauðir tómatar skornir í sneiðar
- 1 rauðlaukur skorinn í sneiðar
- 1 vel þroskað avocado skorið í sneiðar
Aðferð: Byrjið á að setja beikonsneiðarnar á bökunarpappírsklædda ofnplötu og bakið við 220 gráður í 10 mínútur eða þar til beikonið er stökkt. Hrærið öllu innihaldinu í sósuna saman.Skerið niður grænmetið sem bera á fram með borgaranum.Kljúfið kjúklingabringurnar í tvennt á þykktina og kryddið. Hitið stóra pönnu og bræðið smá smjör á henni. Steikið bringurnar vel á báðum hliðum þar til næstum tilbúnar. Leggið tvær beikonsneiðar á hverja bringu. Setjið svo eina (eða tvær) væna ostsneið þar ofan á. Setjið lok á pönnuna, lækkið hitann og bíðið þar til osturinn bráðnar. Berið fram á hamborgarabrauði eða með spældu eggi, meðlætinu og sósunni og njótið.
Amma Þura
Þetta lítur svo girnilega út. Það er sól í þessum “hamborgurum”.