• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Grillaður lax með himneskri marineringu

ágúst 27, 2013 by helenagunnarsd 6 Comments

min_IMG_3710Þessi grillaði lax sem ég var með um daginn fer beint á topp fimm yfir bestu fiskmáltíðir sem ég hef borðað. Ef ekki bara topp fimm máltíðir fyrr og síðar. Það gæti haft sitt að segja að laxinn var villtur og spriklandi ferskur, veiddur af pabba, flakaður af mömmu (ég er alveg glötuð í fiskflökun) og alveg passlega stór. Sumsé ekki of stór, mér þykja litlir laxar betri en stórir og ég þarf varla að taka það fram hvað villtur lax er miklu, miklu betri en eldislax. Marineringin er alveg stórgóð á fisk eins og lax sem þolir mikið bragð og ég mæli heilshugar og óhikað með því að þið prófið þessa marineringu og prófið að grilla lax með þessum hætti við fyrsta tækifæri. Ég er ekki frá því að marineringin myndi jafnvel virka glimrandi vel á eldislax. En notið endilega þennan villta ef þið komist yfir flak eða tvö!

min_IMG_3723Margir eru hræddir við að grilla lax beint á sjóðandi heitu grilli og eru að vesenast með einhverja grillbakka eða álpappírsvasa en það er algjör óþarfa hræðsla. Það er nauðsynlegt að hafa grillið rjúkandi heitt og leyfa laxinum að liggja óhreyfðum í 2-3 mínútur, snúa honum svo við með spaða og leyfa honum að klára að eldast á roðhliðinni í 2-3 mínútur í viðbót. Ég viðurkenni alveg að hann getur átt það til að festast aðeins við grillið en á meðan hann er á roðinu er engin hætta á að hann detti í sundur. Gott er að vera vopnaður góðum spaða og þá er ekkert mál að ná honum svo beint af roðinu sem verður eftir á grillinu og færa hann upp á fat. Það er líka algjört grundvallaratriði að ofelda ekki svona fiskmeti því þá er nú eiginlega ekkert varið í það lengur. Takið laxinn því af grillinu rétt áður en þið haldið að hann sé tilbúinn og leyfið honum að jafna sig á diski í 5-10 mínútur áður en hann er borinn fram.

min_IMG_3707Marinering:

  • 2 msk dijon sinnep
  • 1 msk hunang
  • 4 msk sojasósa
  • 6 msk ólífuolía
  • 1 hvítlauksrif, rifið eða smátt saxað
  • Lax – ég var með tvö frekar lítil flök og dugði marineringin vel á þau
  • Saxaður vorlaukur til að strá yfir að lokinni eldun

min_IMG_3708Aðferð: Breinhreinsið laxaflökin og skerið þau í passlega bita. Hrærið öllu innihaldinu í marineringuna saman og hellið helmingnum af marineringunni yfir laxinn. Látið standa í 10 mínútur og grillið svo á vel heitu grilli, fyrst á fiskhliðinni, snúið honum við eftir 2-3 mínútur og klárið að elda á roðhliðinni. Takið laxinn af roðinu og berið fram með restinni af marineringunni, söxuðum vorlauk og t.d einföldu fersku salati. min_IMG_3724

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Fljótlegur matur, Góð marinering, Grillaður fiskur, Grillaður lax, Lax uppskrift, LKL uppskrift, Marinering á fisk

Previous Post: « Tagliatelle alla carbonara
Next Post: Bláberjasósa með vanillu »

Reader Interactions

Comments

  1. Hrafnhildur

    október 18, 2013 at 20:22

    vorum með svona lax og þetta var ÆÐI, takk Helena 🙂

    KV Hrafnhidur

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 18, 2013 at 20:34

      Frábært, en gaman að vita 🙂

      Svara
  2. Nafnlaust

    ágúst 7, 2014 at 13:16

    æðislegur réttur =)

    Svara
  3. Kristinn Jóhanson

    júlí 18, 2020 at 17:40

    En og aftur lax á grillið takk fyrir uppskriftina!!

    Svara
    • helenagunnarsd

      júlí 18, 2020 at 18:27

      En gaman! Takk fyrir að leyfa mér að vita 🙂

      Svara

Trackbacks

  1. Nokkrar sumarlegar uppskriftir | Eldhúsperlur skrifar:
    apríl 24, 2014 kl. 17:03

    […] Ó þessi lax. Finnst ykkur fiskur ekkert spes? Setjið á hann þessa marineringu og þið skiptið um skoðun. Namm! Létt og fljótlegt meðlæti – nú eða forréttur, alltaf svo sígilt og gott. Mozarella og tómatar. Ég gæti borðað þetta á hverjum degi.Grillað lambakjöt á teini með papriku og rauðlauk. Allt á teini er gott og sumarlegt. Það er bara þannig. […]

    Svara

Skildu eftir svar við Kristinn Jóhanson Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme