Ágústmánuður er í miklu uppáhaldi hjá mér. Við Heimir giftum okkur í ágúst fyrir þremur árum, við fluttum í íbúðina okkar í ágúst fyrir fimm árum og svo eigum við mamma báðar afmæli í ágúst með tveggja daga millibili. Í minningunni var alltaf gott veður á afmælisdaginn minn í gamla daga. Jafnvel svo gott veður að í afmælisveislum var vel hægt að fara út í leiki í afmæliskjólnum og spariskóm. Þá var skólinn heldur ekki ennþá byrjaður þann 30. ágúst þegar ég á afmæli og nokkrir dásamlegir sumarfrísdagar ennþá eftir. Ég er handviss um að sumrin hafi verið lengri hérna áður fyrr.. og hlýrri og sólríkari, það bara getur ekki annað verið. Ég tek þó haustinu fagnandi og kann voða vel að meta ilminn af haustlaufunum og svo á litli 4 ára pjakkurinn okkar afmæli eftir nokkrar vikur sem hann minnir okkur á daglega.
Talandi um afmæli þá átti mamma afmæli í síðustu viku. Hún var með smá boð fyrir fjölskylduna og bað um pastasalat á hlaðborðið í afmælisgjöf frá mér. Þeirri bón var sannarlega ekki hægt að neita svo úr varð að ég útbjó handa henni þetta ljúffenga og litríka salat. Hlutföllin í svona salati eru nú ekki heilög og ég týndi í það svona það sem mér þykir best og hugsaði líka um að hafa litina í því sem fjölbreyttasta. Milda chilli dressingin setur algjörlega punktinn yfir i-ið. Mér finnst alveg stórsniðugt að bjóða upp á svona salat í veislum eða bara útbúa dálítið af því og eiga í ísskáp. Upplagt í nesti eða fljótlegan hádegis- eða kvöldmat.
- 700 gr. pasta t.d skrúfur og penne
- 1 lítið brokkolíhöfuð
- 1 gul paprika
- 1 græn paprika
- 1 askja kirsuberjatómatar
- 5 vorlaukar
- 1 búnt fersk steinselja
- 1 bréf pepperoni eða sveita salami
- 1 stykki Maríbó ostur, skorinn í litla teninga (ca. 350 gr)
- 1 krukka svartar ólífur
- 1 krukka sólþurrkaðir tómatar
- Salt og pipar
Aðferð: Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum. Hellið vatninu af og látið pastað kólna alveg og setjið í stóra skál eða ofnskúffu, allavega það stórt ílát að hægt sé að blanda öllu saman með góðu móti. Skerið, brokkolíið, papríkurnar, salami pylsuna og tómatana í frekar litla bita (svipaða á stærð og pastað). Saxið steinseljuna smátt, skerið ostinn í teninga, hellið vatninu af ólífunum en hafið þær heilar, skerið sólþurrkuðu tómatana í strimla og leyfið smá af olíunni að fara út í salatið. Blandið öllu vel saman og hellið að lokum dressingunni yfir salatið og blandið saman við. Skreytið með steinselju og tómatabátum.
- 5 msk majónes
- 2,5 dl ab mjólk eða hrein jógúrt
- 2-3 tsk sambal oelek chilli mauk (eftir smekk)
- 1/4 tsk salt
- 2 tsk hunang
- 2 tsk hvítvínsedik
Aðferð: Blandið öllu saman í skál og hrærið vel saman þar til silkimjúkt. Þynnið með smá mjólk ef ykkur finnst sósan of þykk. Smakkið til með salti og pipar. Hægt er að útbúa tvöfalda uppskrift af sósunni og hella helmingnum út á og bera helminginn fram með salatinu.
Lára Emilsd.
Mmmmm þetta á ég eftir að prófa 🙂
Takk takk
Ingvar Bjarnason
Prófaði þetta í kvöld. Afskaplega gott 🙂 Alveg sammála með dressinguna, hún gerir gæfumuninn !
helenagunnarsd
En gaman að vita Ingvar! Já, dressingin setur punktinn yfir i-ið 😉 Takk fyrir innlitið.
Kær kveðja, Helena