Ég var með þennan einstaklega fljótlega og góða kjúklingarétt með kasjúhnetum í gærkvöldi. Þennan er upplagt að gera þegar ekki er mikill tími til eldamennsku og ég get nánast fullyrt að það er fljótlegra að matreiða réttinn en að fara út á næsta skyndibitastað. Uppskrftina fann ég á síðunni hennar Mörthu Stewart fyrir margt löngu síðan en átti alltaf eftir að prófa. Ég varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Prófið þennan.
Kjúklingur með kasjúhnetum (breytt uppskrift af www.marthastewart.com)
- 700 gr beinlaust kjúklingakjöt t.d læri eða bringur
- 2 msk maíssterkja eða kartöflumjöl
- 4 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
- 4 vorlaukar, smátt saxaðir
- 3 msk hrísgrjónaedik
- 1 1/2 dl hoisin sósa
- 1 lítið brokkolíhöfuð, skorið í smáa bita
- 100 gr ristaðar kasjúhnetur
- Salt, pipar, chilliflögur og olía
Aðferð: Byrjið á að skera kjúklinginn í passlega munnbita, setjið í skál með maíssterkjunni og veltið vel uppúr. Kryddið með salti og pipar.Hitið 2 msk af olíu á stórri pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er stökkur og nánast eldaður í gegn. Bætið hvítlauknum og vorlauknum á pönnuna, steikið í 1-2 mínútur og hellið þá hrísgrjónaedikinu út á.Látið sjóða niður í 1 mínútu. Hellið hoisin sósunni yfir ásamt ca. 1/2 dl af vatni, kasjúhnetunum og brokkolíinu. Blandið vel saman og látið sjóða í 2-3 mínútur.Ég vil hafa réttinn sterkan svo ég bætti við hressilega af muldum chilliflögum. Smakkið til þar til rétturinn er eins og þið viljið hafa hann. Berið fram með hrísgrjónum.
Gerða Kristjáns
Girnilegt 🙂
En hvar koma kasjúhneturnar inní þetta og í hversu miklu magni ?
helenagunnarsd
Sæl Gerða og takk fyrir ábendinguna!
Ég er búin að bæta kasjúhnetunum inn núna 😉
Kær kveðja, Helena
Eva
í hvaða búð fæst hosin sósan og hrísgrjónaedikið?
helenagunnarsd
Fæst oftast í Bónus, annars bara flest öllum matvörubúðum 🙂
Kær kveðja, Helena
Eva
Takk kærlega, hlakka til að prufa þessa 🙂
Nafnlaust
En chilliflögur hvar fást þær ?
helenagunnarsd
Ég held þær fáist í flestum matvörubúðun, eru í kryddhillunum. Veit að þær hafa verið til t.d. frá McCormick, chili flakes heita þær 🙂
Kær kveðja, Helena