Ég á ennþá aðalbláber í frystinum síðan í haust, dásamlegur fylgifiskur þess að vera gift inn í eina mestu bláberjafjölskyldu Íslands þar sem fólk týnir ber af fagmennsku og kann svo vel að meta þessa ljúffengu og hollu ókeypis afurð sem náttúran gefur okkur. Ég viðurkenni það þó fúslega að berjatýnsla hefur hingað til ekki verið mín sterkasta hlið, gengur aðeins of hægt fyrir minn smekk. Þetta er samt að lagast aðeins með árunum, ég gat alveg týnt svona tvo lítra í fyrra, alveg sjálf. Ég er voða sparsöm á þessi ber og líður eins og ég liggi á gulli, tými þeim alls ekki í hvað sem er, sem er sennilega vitleysa. En jæja bláberin (aðal) voru sumsé í frystinum og ég ákvað að reyna að vera svolítið húsmóðurleg í mér og baka eitthvað með 1. maí kaffinu og mikið var yndislegt að gæða sér á nýbakaðri berjabökunni í sólinni á pallinum. Það er alveg hægt að borða hana svona eins og hún kemur fyrir en þeyttur rjómi eða vanilluís gerir auðvitað gott enn betra. Mér finnst mjög gott að nota pálmasykur í bakstur, hann gefur gott karamellubragð, er dálítið dökkur og fer aðeins betur með blóðsykurinn en hvítur sykur. Ég fæ pálmasykurinn í Bónus hjá Sollu vörunum, ef þið viljið ekki nota hann er vel hægt að nota venjulegan sykur eða hrásykur, í sama magni.
Sumarleg berjabaka (bollamálið mitt er 2.5 dl):
- 4 bollar frosin bláber
- 2 bollar jarðarber, skorin í fjóra hluta
- 2 msk maíssterkja eða kartöflumjöl
- 4 msk pálmasykur
- 1 tsk vanilluextract
- Í deigið ofan á:
- 3 egg
- 2 dl pálmasykur
- 1 tsk vanilluextract
- 120 gr smjör, brætt
- 3 msk sýrður rjómi
- 1 bolli fínmalað spelt eða hveiti
- 1/4 tsk salt
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1 msk kanilsykur
Aðferð: Hitið ofn í 160 gráður með blæstri, annars 180 gráður. Smyrjið eldfast mót eða pæform. Blandið bláberjunum, jarðarberjunum, maíssterkjunni, pálmasykrinum og vanillu saman í skál þannig að sterkjan og sykurinn þekji berin vel. Helllið blöndunni því næst í formið.Bræðið smjörið og leyfið því að kólna aðeins. Þeytið egg og sykur þar til ljóst og létt. Bætið vanillu, smjöri, sýrðum rjóma, spelti, lyftidufti og salti saman við og blandið vel saman. Hellið deiginu yfir berin og dreifið aðeins úr því. Stráið einni matskeið af kanilsykri yfir að lokum og bakið í 40-45 mínútur. (Ef berin sem þið notið eru ekki frosin er nóg að baka í um 30-35 mínútur).Berið bökuna fram heita eða volga, gjarnan með vanilluís eða rjóma.
Nafnlaust
Girnilegar kökur og bökur …. nammi namm …..
Nafnlaust
Holl, sumarleg og afar girnileg baka ..
Harpa
love you. Alltaf fullkominn diskur 🙂