• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Matarmikið túnfisksalat

júlí 29, 2016 by helenagunnarsd 2 Comments

IMG_5104Það er örugglega enginn að lesa blogg í dag sem er kannski ekki skrýtið svona föstudag fyrir verslunarmannahelgi. En það er allt í lagi.. Ég ætla að vera heima um helgina og hugsa mér gott til glóðarinnar að hafa það notalegt og njóta þess að sofa í mínu rúmi og geta dregið andann svona nokkuð örugglega (halló frjókornaofnæmi!). En mér finnst samt mikilvægt að njóta þess að vera í fríi þó ég sé heima. Við höfum til dæmis oft farið út að borða um verslunarmannahelgar og hugsa að við látum verða af því sem og að njóta útiveru enda á veðrið að vera dásamlegt um helgina. Ég er allavega jafn spennt fyrir þessari gúrmei heimaveru og einhverjir eru spenntir fyrir þjóðhátíð, alveg satt. Uppskriftin í dag er samt dálítið ferðalagavæn. Matarmikið túnfisksalat í hollari kantinum sem heldur sér vel og er laust við majónes. Ofsalega gott, prófið bara. Góða helgi!

Matarmikið túnfisksalat

  • 1 lítill rauðlaukur eða 1/2 stór, smátt skorinn
  • 1 rauð paprika, smátt skorin
  • 4 harðsoðin egg, smátt skorin
  • 2 dósir túnfiskur í vatni (vatni hellt af)
  • 4 msk Philadelphia light rjómaostur
  • 4 msk Kotasæla
  • Vel af nýmöluðum svörtum pipar
  • Söxuð fersk steinselja

Aðferð: Öllu blandað vel saman. Smakkað til með pipar. Stórgott á ristað brauð eða hrökkbrauð.. uppáhaldið mitt er að setja salatið á gróft rúgbrauð. FullSizeRender-6

Filed Under: Eldhúsperlur

Previous Post: « Ferðamyndir og hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
Next Post: Lúxus ísskáps grautur með súkkulaðibragði  »

Reader Interactions

Comments

  1. Guðný Elínborgardóttir

    júlí 29, 2016 at 17:52

    Þetta líst mér vel á.

    Svara
  2. Jóhanna Ben

    júlí 29, 2016 at 22:53

    Eg fylgist með 🙂 þetta verður sett a matseðilinn minn her suður a Spani, enda svo heitt að ekki er hægt að vera að elda mikið. Takk fyrir þetta

    Svara

Skildu eftir svar við Jóhanna Ben Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme