Þessir bláberjabitar eru jafn einfaldir og þeir eru ljúffengir. Ég hef ef til vill sett óþarflega margar bláberja uppskriftir hingað inn en það er nú bara vegna þess að ég nota bláber mikið. Á enn aðalbláberin góðu síðan í fyrra haust og var svo heppin að fá meira að segja smá áfyllingu á þau á dögunum. Þvílíkur lúxus að hafa aðgang að þessu frábæra hráefni. Sannfærðist endanlega um lúxusinn sem ég bý við þegar ég rakst á litla dós, varla meira en bolla, af ferskum íslenskum aðalbáberjum á 800 krónur í matvörubúð í gær..! Ég hvet ykkur til að kíkja á berjamó á næstunni og næla ykkur í nokkrar góðar lúkur af þessu góðgæti. Það er svo ótrúlega upplífgandi að draga íslensk ber úr frystinum að vetri til og nota í sjeika, bökur eða hvað sem er.
Bláberja bitar – lítillega breytt uppskrift frá Smitten Kitchen (1 bolli: 2,5 dl)
- 3 bollar hveiti eða fínmalað spelt
- 1 bolli sykur
- 1 tsk lyftiduft
- 225 gr kalt smjör skorið í bita
- 1 egg
- 1/4 tsk salt
- Fínrifinn börkur og safinni úr einni sítrónu
- 4 bollar bláber (ég notaði frosin)
- 1/4 bolli sykur (meira ef berin eru mjög súr)
- 3 tsk maíssterkja eða kartöflumjöl
Hitið ofn í 160 gráður með blæstri annars 180. Smyrjið form. Skúffukökuform passar t.d. vel fyrir þessa uppskrift.
Hrærið saman 1 bolla af sykri, 3 bollum af hveiti, lyftidufti, salti og sítrónuberki. Blandið köldu smjörinu og egginu saman við þar til blandan líkist blautum sandi. Hellið helmingnum af deiginu í formið og þrýstið niður með fingrunum.
Blandið þá saman berjunum,sykrinum, sterkjunni og sítrónusafanum. Hellið berjablöndunni yfir botninn. Myljið restina af deiginu yfir berin. Bakið í um 40-45 mínútur eða þar til bakað í gegn og gullinbrúnt (tók aðeins lengri tíma eða um 50 mínútur hjá mér þar sem ég notaði frosin bláber). Kælið alveg og skerið svo í litla bita.