• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Freistandi kjúklingaréttur með púrrulauk og sweet chili rjómasósu

október 2, 2013 by helenagunnarsd 25 Comments

min_IMG_4261Nú nálgast óðfluga sá tími að kona býr ekki lengur við þann lúxus að geta myndað kvöldmatinn í dagsbirtu. Ef ég á að segja alveg eins og er, þá hlakka ég ekkert voðalega mikið til þess tíma. Þeir sem hafa myndað mat, vita að dagsbirta er besti vinur fallegra matarmynda. Og þegar maður er ekki áhuga- eða atvinnu ljósmyndari, á tiltölulega einfalda myndavél, kann næstum ekkert í ljósmyndun og á ekki ljósmyndastúdíó, eru félagarnir myrkur og flass ekki bestu vinir manns. Maður einfaldlega tekur ekki myndir af mat með flassi, það er agalegt! Annað hvort þarf ég að fara að elda matinn í hádeginu, finna eitthvað út úr þessu birtuveseni eða einfaldlega taka myndir af matnum undir ljósunum í eldhúsinu hjá mér og vona það besta. Ég hugsa að þið fáið að sjá sitt lítið af hverju á komandi vetri. Ef þið lumið á einhverjum góðum ráðum varðandi þetta lúxusvandamál mitt, þigg ég þau með þökkum.

min_IMG_4269En þá að uppskrift dagsins. Það má með sanni segja að þessi kjúklingaréttur sé af sparilegri gerðinni. Rjómaostur og sýrður rjómi spilar lykilhutverk í sósunni sem er einstaklega bragðgóð með sætu og mildu chilli og púrrulauksbragði. Rétturinn er til dæmis alveg kjörinn lágkolvetnaréttur, borinn fram með fersku grænu salati eða blómkálsgrjónum. Sweet chilli sósuna er hægt að fá sykurlausa t.d í Krónunni og sennilega víðar. Annars mæli ég nú alveg heilshugar með þessum einfalda og ljúffenga kjúklingarétti fyrir alla og hvet ykkur, kæru vinir til að prófa, þetta er sannkallaður veislumatur.

Freistandi kjúklingur í púrrulauks og sweet chili rjómasósu (fyrir 5):

  • 5 kjúklingabringur, skornar í teninga (gúllas stærð)
  • 1 púrrulaukur, smátt skorinn
  • 2 dósir sýrður rjómi
  • 1 lítil dós rjómaostur (125 gr)
  • 1 teningur kjúklingakraftur
  • 2 hvítlauksrif, smátt söxuð eða rifin
  • 4-5 msk sweet chilli sósa (eftir smekk)
  • 1 dl rifinn ostur
  • Salt og pipar

min_IMG_4260Aðferð: Hitið ofn í 200 gráður með blæstri. Hitið pönnu með smá smjöri eða olíu, saltið og piprið kjúklingabitana og brúnið þá vel eða þar til þeir eru nánast fulleldaðir. Setjið kjúklinginn í eldfast mót. Lækkið hitann á pönnunni, setjið smá olíu eða smjör á pönnuna og steikið púrrulaukinn þar til hann mýkist aðeins, ca. 3 mínútur.

Setjið rjómaostinn, sýrða rjómann, kjúklingatening, hvítlauk og sweet chilli sósuna út á og leyfið að malla aðeins, smakkið til með sweet chilli sósunni. Bætið örlitlu vatni saman við sósuna ef ykkur finnst hún of þykk. Stráið rifna ostinum yfir kjúklingabitana og hellið sósunni því næst yfir. Bakið í ofni við 200 gráður í 15 mínútur eða þar til kraumar í sósunni og hún hefur tekið lit. Berið fram með góðu grænu salati og grjónum.min_IMG_4263

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Einfaldur kjúklingaréttur, Góður kjúklingaréttur, Hugmyndir fyrir matarboð, Kjúklingaréttir uppskrift, Kjúklingur með sweet chilli sósu, LKL kjúklingur, LKL uppskriftir

Previous Post: « Döðluterta með jarðarberjarjóma og súkkulaðikremi
Next Post: Vanillu bollakökur með sjóbláu sjóræningja- vanillukremi »

Reader Interactions

Comments

  1. Ingibjörg Svala 'Olafsdóttir

    október 3, 2013 at 13:36

    spennandi að prófa þennan rétt

    Svara
  2. Nina

    október 4, 2013 at 06:34

    var með þennann í kvöld algjört æði vorum 6 í mat og allir mjög ánægðirn

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 4, 2013 at 13:30

      Frábært Nína. Gaman að vita það, takk fyrir kveðjuna! 🙂

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  3. Ólöf

    október 4, 2013 at 15:07

    sæl
    til að byrja með vil ég þakka þér fyrir að halda út þessari síðu, ég kíki hérna inn reglulega og hef prufað ýmislegt, allt jafn gott og vel heppnað 🙂
    en, að þessari uppskrift (sem mig langar til að prufa sem fyrst), ég bý erlendis og hér er sýrði rjóminn seldur í 500 gr. dósum (þar um bil, minnir mig), gætirðu gefið upp ca. grömm af því sem þú notaðir í þennan rétt þar sem að sýrði rjóminn á Íslandi er jú seldur í litlum dollum.
    takk takk

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 4, 2013 at 15:50

      Sæl Kæra Ólöf og takk fyrir kveðjuna!

      Dósirnar sem ég notaði eru 180 grömm, ég notaði tvær svoleiðis svo samtals notaði ég 360 grömm af sýrðum rjóma, og hann var 18% feitur 🙂

      Gangi þér vel.

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  4. Erla

    október 8, 2013 at 15:39

    Bara yndislegar uppskriftir fá þér og takk hver öðru betri.

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 8, 2013 at 19:37

      Takk fyrir kveðjuna kæra Erla!

      Alltaf svo gaman að frétta hvernig fólki líkar það sem ég er að setja hingað inn. Njóttu bara vel.

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  5. Berglind Petersen

    október 9, 2013 at 12:06

    Hljómar hrikalega vel! Langar að prófa en ég get hins vegar ekki notað rjómaostinn, mælirðu með einhverju öðru í staðinn sem heitir ekki ostur…..matreiðslurjóma kannski?

    Kær kveðja,
    Berglind

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 9, 2013 at 16:08

      Sæl Berglind.

      Þú gætir vel sleppt rjómaostinum og notað t.d matreiðslurjóma eða kaffirjóma í staðin eða notað eingöngu sýrðan rjóma. Ég hugsa meira að segja að sósan verði ekki síðri fyrir vikið. Hún þykknar vissulega dálítið við að nota rjómaostinn en verður alveg nógu þykk af sýrða rjómanum. Gangi þér vel 🙂

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  6. steina

    nóvember 11, 2013 at 16:32

    ég fór í krónuna og ætlaði að kaupa þessa sykurlausu sweet chilli sósu og þar kannaðist ekki neinn við þetta. Hvaða vörumerki er þessi sósa?

    Svara
    • helenagunnarsd

      nóvember 11, 2013 at 16:41

      Sæl Steina – Ég man ekki hvað vörumerkið heitir og á því miður ekki lengur flöskuna. Ég keypti sósuna í Krónunni Vallakór og henni var stillt upp við hliðina á hinum sweet chilli sósunum. Ég athuga þetta næst þegar ég fer í Krónuna og læt þig vita 🙂

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  7. Aðalheiður Kristín Jónsdóttir

    nóvember 11, 2013 at 20:58

    Mög góður réttur mæli með honum 😀

    Svara
  8. steina

    nóvember 15, 2013 at 15:35

    takk fyrir það

    Svara
  9. Nafnlaust

    janúar 11, 2014 at 12:41

    Mjög góður kjúkklingaréttur. Frábær síða hjá þér ..og mikið notuð á mínu heimili. Takk..takk..

    Svara
  10. Anna

    apríl 21, 2014 at 01:02

    Takk kærlega fyrir uppskriftina, hún er frábær og verður örugglega elduð oftar.

    Svara
  11. Sigrún

    september 1, 2014 at 23:44

    Hvernig myndi uppskriftin verða fyrir 2 ?

    Svara
    • helenagunnarsd

      september 3, 2014 at 16:37

      Sæl Sigrún

      Ég myndi bara minnka uppskriftina um helming – Gera 2-3 bringur og helmingi minna af öllu hinu 🙂

      Gangi þér vel.
      Kær kveðja, Helena

      Svara
  12. Nafnlaust

    september 19, 2014 at 00:32

    Í sambandi við myndatökuna, þá gætiru prófað að strekkja álpappír á pappaspald og endurvarpa ljósinu á matinn ásamt að nota loftljósið. Spurnign hvort að það dugi til að lýsa upp matinn. Og ég á svoooo
    eftir að prófa þennan rétt enda kjúklingur það vinsælasta á mínu heimili 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      september 19, 2014 at 10:32

      Takk fyrir góð ráð – prófa þetta í vetur þegar myrkrið skellur á..dagsbirtan er þó alltaf með vinninginn 🙂 En ég mæli alveg innilega með kjúllanum, hann vekur vonandi lukku!

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  13. Nafnlaust

    janúar 22, 2015 at 17:59

    Þetta er æðislegur réttur. Við prófuðum að setja salsasósu líka saman við sósuna og það heppnaðist mjög vel. Takk fyrir okkur.

    Svara
  14. Nafnlaust

    september 5, 2015 at 22:15

    Var með kjúllaréttinn þinn í kvöld og kallinn og ég mjög ánægð,nammi nammi 😊

    Svara
  15. Nafnlaust

    september 5, 2015 at 22:17

    Var með kjúllaréttinn þinn í kvöld ,kallinn og ég mjög ánægð,nammi nammi 😊 mjög svo gott Helena.Takk fyrir okkur.

    Svara
  16. jóhanna

    september 12, 2015 at 19:37

    Sæl eg hef oft haft þennan rett og fynst hann æði
    eg ætla að bjóða fólki í mat og hafa hann um helgina 🙂
    en það er ekki hægt að fá púrrulauksúpuna lengur
    veist þú hvað eg get haft í staðinn
    takk kærlega fyrir okkur

    Svara
  17. Alla Stína

    september 26, 2018 at 11:56

    Besti og einfaldasti kjúllarétturinn þarna úti! Elska hann, er búin að gera hann 1000 sinnum og bregst aldrei! Takk Takk Takk!

    Svara

Trackbacks

  1. Kjúklingur í rjómaostasósu | Anna í eldhúsinu skrifar:
    janúar 26, 2015 kl. 12:00

    […] er reyndar alveg svakalega góð og ég mæli alveg með því að þið prófið hana (sjá hér) en einn góðan veðurdag átti ég kryddaðan rjómaost og fullt af brokkólí og var að […]

    Svara

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme