Ég er búin að vera með þennann rétt á heilanum síðan við komum heim úr sólinni á Tenerife og hef eiginlega ekki komist í almennilega ró fyrr en bara núna eftir að hafa eldað hann. Að koma úr 25 stiga hita og sól í 1 gráðu og Suðaustan sjö kallar á eitthvað eitthvað heitt og gott að borða, svona ekta spari þægindamat. Þetta er hugsanlega einn mesti þægindamaturinn hérna á síðunni og er liggur við of einfaldur til að gefa uppskrift af. Hann er líka þeim mun ljúffengari og upplagður þegar maður vill gera vel við sig og sína, jafnt fullorðna sem börn án mikillar fyrirhafnar. Enda enginn hollusturéttur, þetta er sko rjómasósa gott fólk! Þetta er ein af þeim sósum sem er ekki hægt að gera of mikið af því hún hverfur jafn harðan ofan í mannskapinn.
Það var því ekkert annað að gera en að bjóða nokkrum vel völdum í mat og gera réttinn. Ég fékk þennan rétt í fyrsta skiptið í matarboði hjá góðu fólki fyrir nokkuð löngu síðan og fékk uppskriftina á munnlegu formi svona eiginlega í dyragættinni á leiðinni út. Hef verið á leiðinni að elda hann síðan en ekki alveg vitað nákvæmlega hvað var í honum. Ég gerði því bara mína útgáfu sem var byggð á grunn upplýsingum frá eðal kokknum sem ég smakkaði hann hjá fyrst.
Myndirnar hefðu vel mátt verða fleiri og betri en gestirnir voru komnir og græðgin of mikil fyrir langar myndatökur. Ég mæli hins vegar óhikað með þessum rétti, ekki láta myndaleysi gabba ykkur 🙂
Kjötbollur í chilli rjómasósu (fyrir 6 fullorðna):
Kjötbollur
- 2 bakkar (1kg) ungnautahakk
- 1 pakki púrrulaukssúpa
- 1 pakki Tuc kex, mulið smátt
- 1 egg
- 1 tsk nýmalaður svartur pipar
Aðferð: Öllu blandað vel saman, ég set allt innihaldið í hrærivélaskál og læt vélina um erfiðið. Þegar allt er komið saman mótið bollur á stærð við golfkúlur úr hakkinu. Hitið örlitla olíu á pönnu og brúnið bollurnar við frekar háan hita. Færið þær svo yfir í stórt eldfast mót en hellið frá umfram fitunni sem kemur á pönnuna.
Sósan:
- 3,5 dl rjómi
- 1 flaska Heinz chilli sósa
- 1 tsk karrý
Ofaná
- 1 rauð paprika
- 1 tsk hunang
Aðferð: Létt þeytið rjómann í skál. Blandið chilli sósunni og karrýinu saman við með sleif og hellið sósunni jafnt yfir bollurnar í eldfasta mótinu. Sneiðið paprikuna þá í frekar mjóa strimla og steikið á vel heitri pönnu. Þegar strimlarnir eru orðnir dálítið vel steiktir setjið þá hunangið á pönnuna þannig að paprikustrimlarnir verði vel hunangsgljáðir. Hellið yfir kjötbollurnar og sósuna og bakið í við 180 gráðu í 20 mínútur. Ég bar réttinn fram með taglietelle og góðu grænu salati.
kakan
Þetta er allveg æðisleg uppskirft! namm..
jóhanna
æðisleg uppskrift það er ekki lengur hægt að fá púrrulauksúpuna
veist þú hvað eg get notað í staðinn
takk fyrir mig 🙂
helenagunnarsd
Það er komin ný tegund af púrrulauksúpu, fæst t.d. í Bónus! Man ekki frá hvaða fyrirtæki samt.. En ef þú finnur hana ekki er gott að nota bara salt og pipar, fínt saxaðan vorlauk eða púrrulauk, og 1-2 tsk af grænmetiskrafti (ég nota Oscar kraft, duft eða fljótandi)
Gangi þér vel!
Kær kveðja, Helena
jóhanna
Takk fyrir <3