Ég var eiginlega búin að gleyma því hversu dásamlega gott það er að baka sitt eigið brauð. Þó mér finnist nú voða gaman að baka svona almennt þá finnst mér brauðbakstur toppa annan bakstur. Það er eitthvað svo róandi við að baka brauð, sérstaklega svona brauð sem er eiginlega engin hætta á að klúðra. Maður getur nokkurn veginn sett saman það sem manni þykir best og það þarf ekki að bíða eftir að það lyfti sér. Svona brauð er að mínu mati alveg jafn gott daginn eftir að það er bakað, ef ekki bara betra og mér þykja graskersfræin algerlega ómissandi. Þeim má þó auðvitað skipta út fyrir önnur fræ. Uppskriftin er ansi stór og passar vel í eitt stórt jólaköku- eða brauðform. Ég mæli með því að vefja brauðinu inn í þurrt viskastykki þegar það hefur verið losað úr forminu og því leyft að kólna þannig í a.m.k 30-60 mínútur eftir bakstur. Þá mýkist skorpan aðeins og mun auðveldara verður að skera það í fallegar sneiðar.
Gróft spelt- og hafrabrauð með graskersfræjum:
- 5 dl gróft spelt
- 2 dl grófir hafrar
- 1/2 dl sesamfræ
- 1 dl graskersfræ
- 1 tsk sjávarsalt
- 4 tsk vínsteinslyftiduft
- 3 dl hrein jógúrt eða ab mjólk
- 1 msk ólífuolía
- 2-3 dl heitt vatn
Aðferð: Hitið ofn i 160 gráður með blæstri eða 180 gráður án blásturs. Blandið saman öllum þurrefnum. Hrærið saman við olíunni og ab mjólkinni. Bætið vatninu smám saman út í og hrærið aðeins þar til deigið er að mestu komið saman, alls ekki hræra of mikið. Deigið á að vera eins og þykkur grautur og dálítið klístrað. Setjið deigið í smurt brauðform og stráið vel af graskersfræjum yfir. Bakið í 45 mínútur. Ef þið gerið litlar bollur úr deiginu, setjið þá um 2 msk af því í einu á bökunarplötu og bakið í um 15-20 mínútur.
Sigurborg
Hvað bakarðu þetta brauð í stóru formi ?
helenagunnarsd
Sæl – Formið mitt er 26 x 8cm (botnmál)
Unnur Bjarnadóttir
frabært brauð! baka það mjög oft 🙂