• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Rómantísk frönsk lauksúpa..

janúar 22, 2014 by helenagunnarsd 4 Comments

min_IMG_4377Hvernig ég gat gleymt að deila með ykkur yndislegu innbökuðu frönsku lauksúpunni sem ég eldaði fyrir Vikuna í haust, skil ég ekki. Ég hef eitthvað óvenju lítið verið í eldhúsinu undanfarna daga svo ég gladdist innilega þegar ég rakst á myndir af þessari dásemd á dögunum og er ákaflega glöð að geta nú, í uppskrifta skorti, sett inn þessa fínu uppskrift. Það eru til ótal útgáfur og tegundir af lauksúpum og nei, ég er sannarlega enginn sérfræðingur í sögu lauksúpunnar eða hversu frönsk eða upprunaleg þessi uppskrift er. Ég hef prófað mig áfram oftar en ég hef tölu á þar sem lauksúpa er eitt af því besta sem við á heimilinu borðum. Ég man líka eins og það hafi gerst í gær þegar ég smakkaði franska innbakaða lauksúpu hjá mömmu í fyrsta skiptið og þá var ekki aftur snúið. Eftir margar tilraunir og lestur hefðbundinna sem og óhefðbundinna uppskrifta að franskri lauksúpu er ég komin niður á útgáfu sem ég er bara ansi ánægð með þó ég segi sjálf frá.

min_IMG_4376Galdurinn að baki góðri lauksúpu er í fyrsta lagi að hafa næga þolinmæði til að láta laukinn malla hægt og rólega þannig að hann verði sætur, mjúkur og gullinbrúnn. Hljómar vel ekki satt? Eftirleikurinn er svo tiltölulega einfaldur og um að gera að smakka sig áfram þar til súpan er akkúrat eins og þið viljið hafa hana. Þannig verður matur auðvitað bestur. Súpan er svo borin fram rjúkandi heit með góðu rauðvínsglasi við kertaljós. Bullandi rómantík! Ég myndi ekki hika við að gera þessa á bóndadaginn..

min_IMG_4390Frönsk lauksúpa

  • 1 kg laukur, skorinn í tvennt og svo í þunnar sneiðar
  • 2 lárviðarlauf
  • 2-3 greinar ferskt timian eða 2 tsk þurrkað timian
  • 50 gr smjör
  • 2 msk hveiti
  • 1 glas hvítvín
  • 1,5 – 2 l kjötsoð (t.d vatn og nautakraftur, fer svolítið eftir því hversu þykka eða þunna þið viljið hafa súpuna)
  • Salt og pipar
  • 2-3 msk koníak (má sleppa en er virkilega gott.. og sparilegt)
  • Brauð, t.d baguette skorið í frekar stóra teninga, gott að nota dagsgamalt eða frekar þurrt brauð.
  • Rifinn Ísbúi eða annar bragðmikill ostur

Aðferð: Byrjið á að skera laukinn í sneiðar og bræða smjörið í stórum potti við meðalhita. Steikið laukinn í smjörinu og bætið timian og lárviðarlaufum út í. Kryddið með smá salti og pipar. Steikið þetta við lágan-meðalhita í u.þ.b 40 mínútur eða þar til laukurinn hefur minnkað um helming og er orðinn fallega brúnn og karamelliseraður. Bætið þá 2 msk af hveiti saman við og steikið í um 5 mínútur. Hellið þá hvítvíninu og soðinu saman við og hrærið vel í á meðan suðan er að koma upp.

Leyfið að malla í a.m.k 30 mínútur og smakkið til með salti og pipar og ef til vill örlitlu koníaki. Takið lárviðarlaufin upp úr. Hitið grillið í ofninum á hæsta styrk. Setjið súpuna í skálar og dreifið brauðteningunum yfir og vel af rifnum osti. Bakið undir grillinu þar til osturinn er bráðnaður og aðeins farinn að dökkna. Það má líka elda súpuna í eldföstum potti, dreifa brauðinu og ostinum beint yfir súpuna í pottinum og setja hann svo undir grillið. min_IMG_4386p.s. – minni á leikinn í færslunni hér fyrir neðan….

Filed Under: Eldhúsperlur Tagged With: Frönsk innbökuð lauksúpa, Frönsk lauksúpa, Góð súpa, Gratineruð lauksúpa, Innbökuð lauksúpa, Lauksúpa uppskrift, Uppskrift að lauksúpu

Previous Post: « Jónsdóttir & Co – Gjafaleikur
Next Post: Fljótlegur kjúklingur með kasjúhnetum »

Reader Interactions

Comments

  1. Sif Davíðsdóttir

    janúar 23, 2014 at 16:34

    Ég gerði svona súpu nema ég notaði smá slettu af púrtvíni og ristaði brauð og setti ost ofan á og grillaði inní ofni…..mjög gott 🙂 Takk fyrir frábært matarblogg 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      janúar 23, 2014 at 17:01

      Hljómar afar vel 🙂 Takk fyrir kveðjuna!

      Svara
  2. Nanna Gunnarsdóttir

    febrúar 26, 2014 at 20:57

    Svo er frábært að bæta smá hvítlauk í súpuna, mjööög franskt.
    Ég skar nokkrar sneiðar af snittubrauði, hverja sneið í fjóra bita, setti í eldfast mót með smjör og hvíitlauk til að fá smá skorpu á brauðið inn í ofn og hvítlauk mér, trés francais, brauðið fór svo yfir og osturinn þar yfir. Auk þess var ég búin að setja hvítlauk í súpuna, hvítlaukur er aldrei of oft kveðinn.

    Svara
  3. helenagunnarsd

    febrúar 26, 2014 at 23:29

    Sammála þér með hvítlaukinn Nanna, nota hann oft í þessa súpu en sleppti honum í þetta skiptið 🙂 hann gerir sannarlega gott aðeins betra! Takk fyrir innlitið og kveðjuna.

    Kær kveðja, Helena

    Svara

Skildu eftir svar við Sif Davíðsdóttir Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme