Hér er einn af þessum sívinsælu og sígildu kjúklingaréttum sem eru svo þægilegir matreiðslu en í senn alveg einstaklega ljúffengir. Uppskriftin er byggð á hinum klassíska ítalska piccata kjúklingi en piccata stendur fyrir matreiðslu aðferð þar sem kjöt er skorið þunnt, velt upp úr hveit eða öðru mjöli, steikt og borið fram í einhverskonar sósu. Á ítölskum veitingastöðum (allavega þeim sem ég hef farið á) er piccata kjúklingur oftast í hvítvíns eða sítrónu sósu, gjarnan borinn fram með kapers. Mér þykir rétturinn alveg einstaklega góður, enda bæði hrifin af kapers og sítrónubragði sem er sannarlega áberandi í réttinum. Það er kjörið að bera piccata kjúklinginn fram með góðri kartöflumús eða bara einföldu grænu salati. Ískalt hvítvínsglas myndi sennilega ekki skemma fyrir..
Piccata kjúklingur (fyrir 4):
- 4 kjúklingabringur, skornar í tvennt langsum og þynntar með buffhamri
- 4 msk hveiti eða fínmalað spelt
- 2 msk ólífuolía og 1 msk smjör
- 2 dl hvítvín (hægt að sleppa og nota kjúklingasoð)
- 1/2 dl nýkreistur sítrónusafi (eða ca. safinn úr hálfri sítrónu)
- 3-4 msk kapers
- 3 msk rjómi
- Sjávarsalt, nýmalaður pipar og söxuð fersk steinselja
Aðferð: Hitið pönnu á meðalhita og setjið á hana smjör og ólífuolíu. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar. dreifið úr hveitinu á disk og veltið kjúklingnum upp úr hveitinu. Steikið kjúklinginn þar til eldaður í gegn eða í um það bil fjórar mínútur á hvorri hlið. Takið af pönnunni og geymið á diski. Hækkið hitann á pönnunni og hellið hvítvíninu, sítrónusafanum og kapers út á. Látið sjóða niður í 2-3 mínútur. Hellið rjómanum út í og smakkið til með salti og pipar. Setjið kjúklinginn út í sósuna og leyfið að malla í örfáar mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur hitnað aftur í gegn. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið fram.
Guðrún Þórbjarnardóttir
Þessi er örugglega frábær. Takk Helena mín.
helenagunnarsd
Verði þér að góðu kæra Guðrún. Já okkur finnst hann allavega voða góður.
Kær kveðja, Helena
Ína Árnadóttir
Eldaði þennan rétt í kvöld,og hann var mjög góður. Takk fyrir skemmtilegar uppskriftir..
helenagunnarsd
En gaman Ína, takk fyrir kveðjuna 🙂
Kær kveðja, Helena
Guðný Björk
Þessi var á borðum hér í kvöld og sló algjörlega í gegn. Einstaklega einfaldur og fljótlegur réttur og ekki skemmir fyrir að hann er virkilega góður 🙂