Sumarið sem ég varð 18 ára fór ég til Malaga á Spáni og var þar í mánuð í spænskuskóla. Þetta var sannarlega einhver skemmtilegasti mánuður ævi minnar og þvílík upplifun fyrir 17 ára unglingsstelpu að fara alein langt í burtu frá öllum og það fyrir tíma Facebook og Skype. Skólinn var dásamlegur í fallegu úthverfi Malaga borgar og þar kynntist ég í fyrsta skipti alvöru andalúsískri paellu og gazpacho.. og flamenco dansi og nautaati og San Miguel en það er önnur saga. Paellan heillaði mig aldrei neitt sérstaklega, þannig lagað, en ég hef allar götur síðan verið afar hrifin af gazpacho, sem er í raun bara köld súpa. Það er fátt eins frískandi í 30 stiga hita en ísköld og bragðmikil gazpaco og merkilegt nokk þá er hún bara alveg ágæt líka í 15 stiga hita á Íslandi. Ég hef ekki getað hætt að hugsa um þessa vatnsmelónu gazpacho síðan ég sá hana í uppskriftatímariti um daginn. Svo gerði ég hana um daginn, við borðuðum hana í sólinni á pallinum og nú get ég aftur ekki hætt að hugsa um hana. Hún skoraði fullt hús stiga hjá okkur, svo fersk, létt og bragðgóð, fullkominn forréttur á undan grillmat til dæmis. Þarna sannast líka enn og aftur hið margkveðna, hvað einfalt er oftast langbest, í matargerð sem og öðru. Ég mun gera þessa aftur og aftur.
Vatnsmelónu gazpacho fyrir 4 (örlítið breytt uppskrift úr FoodNetwork Magazine):
- 2 bollar vatnsmelóna, afhýdd og skorin í litla bita
- 2 eldrauðir vel þroskaðir tómatar
- 1/4 bolli góð jómfrúar ólífuolía
- 1/2 agúrka, fræhreinsuð
- 1/2 grænn eða rauður chillipipar, fræhreinsaður ef þið viljið ekki sterka súpu
- 2 msk smátt saxaður rauðlaukur (og aðeins meira til að strá yfir)
- 2 tsk rauðvínsedik
- Sjávarsalt og nýmalaðurr pipar
- 4 msk fetaostur í vatni
- Smávegis af graslauk og steinselju, smátt saxað (líka hægt að nota aðrar ferskar kryddjurtir, t.d dill)
Aðferð: Setjið einn og hálfan bolla af saxaðri vatnsmelónu og tómatana í blandara og þeytið þar vel maukað. Bætið út í ólífuolíu, agúrku, chillipipar, rauðlauk, rauðvínsediki, salti og pipar (ég notaði alveg 1 tsk af grófu Saltverk sjávarsalti). Blandið þessu vel saman þar til silkimjúkt. Smakkið til með salti, pipar og rauðvínsediki. Hellið í könnu eða skál og kælið í a.m.k 30 mínútur. Hellið súpunni í bolla eða litlar skálar. Toppið með restinni af vatnsmelónunni, fetaosti, smátt söxuðum rauðlauk, graslauk, steinselju eða dilli. Berið fram strax, ískalt.