• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Amerísk gulrótarterta

ágúst 14, 2014 by helenagunnarsd 9 Comments

min_IMG_6345Á ferðalagi okkur um Norðurlandið fyrr í sumar vorum við svo heppin að fá oftast framúrskarandi góðan og ferskan mat. Það er virkilega gaman að sjá hvað metnaður í matreiðslu virðist vera að aukast og ég held að kröfur um góðan mat séu sífellt að verða meiri. Það er nokkuð ljóst að ef veitingastaðir eiga að ganga þarf maturinn þar að vera það góður að maður vilji koma aftur og aftur. Ekki miklar líkur á að staðir gangi vel sem fá hvern gest aðeins einu sinni í mat og síðan ekki söguna meir. Stundum þegar ég fæ svona allt í lagi góðan mat á veitingastað þarf oft ekki nema eitthvað eitt frábært til að sannfæra mig um að koma aftur. Frábæran eftirrétt eða forrétt, fullkomlega eldað kjöt eða fisk og ég verð sannfærð um að þarna sé eitthvað gott á ferðinni. En að sama skapi get ég orðið frekar sár þegar pantaður er réttur sem svo auðveldlega getur verið frábær en er það svo ekki. min_IMG_6364Eitt af því besta í bakkelsismálum sem maðurinn minn veit er gulrótarkaka. Hann pantaði sér einmitt eina slíka í eftirrétt á frekar fínum veitingastað á Norðurlandinu í fríinu okkar góða. Þvílík vonbriðgði. Kakan var næstum því jafn þurr og tvíbaka og bragðið óspennandi eftir því. Glötuð gulrótarkaka sumsé. Lífið er sannarlega of stutt fyrir vont bakkelsi, svona ef maður ætlar á annað borð að leyfa sér það. Ég ákvað því í tilefni brúðkaupsafmælis okkar á dögunum að baka bestu gulrótartertu hingað til.. því svoleiðis gerir maður ef maður ætlar á annað borð að baka gulrótartertu. Það varð enginn fyrir vonbrigðum í þetta skiptið enda um einstaklega ljúffenga tertu að ræða. Uppskriftin er gömul og amerísk og af þeim matarbloggum að dæma sem hafa tekið tertuna fyrir, er þetta besta gulrótarterta sem um ræðir. Held ég sé bara sammála því svei mér þá. Kremið sem ég nota er ekki með rjómaosti, mér þykir svoleiðis krem oftast allt of væmið og bara ekki nógu gott. Ég bjó því til frekar klassískt hvítt vanillusmjörkrem með smá sítrónusafa. Ég mæli eindregið með að þið prófið þessa.

min_IMG_6376min_IMG_6387Amerísk gulrótarterta (Örlítið tilfærð uppskrift frá www.momontimeout.com):

Ath: Bollamálið sem ég nota er 2.5 dl.

  • 1 1/4 bolli bragðlítil olía
  • 1 1/2 bolli sykur
  • 3 egg
  • ————————
  • 2 bollar hveiti eða fínmalað spelt
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 1/2 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 1 tsk kanill
  • ————————
  • 2 bollar rifnar gulrætur
  • 1 bolli kókosmjöl
  • 1 bolli hakkaðar valhnetur eða pekanhnetur (má sleppa)
  • 2 tsk vanilluextract
  • 1 bolli hakkaður ananas úr dós með safanum

Aðferð: Hitið ofn í 170 gráður með blæstri annars 190 gráður. Smyrjið tvö 24 cm kökuform og leggið smjörpappír í botninn. Byrjið á að þeyta saman olíu, sykri og eggjum þar til blandan lýsist aðeins og verður örlítið loftkenndari. Blandið saman í annari skál: hveiti, matarsóda, lyftidufti, salti og kanil. Í þriðju skálinni blandið saman rifnum gulrótum, kókosmjöli, hnetum (ef þið notið þær), vanillu og ananas (með safanum). Hellið hveitiblöndunni og gulrótarblöndunni saman við eggjablönduna og hrærið þar til þetta er komið vel saman án þess þó að hræra of lengi. Skiptið deiginu jafnt í formin og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bakað í gegn. Fylgist með kökunum þar sem ofnar geta verið misjafnir. Takið kökurnar út og látið kólna alveg áður en kremið er sett á.min_IMG_6337

Krem:

  • 250 gr mjúkt smjör
  • 500 gr flórsykur
  • 2 msk ferskur sítrónusafi (ekki úr plastflösku)
  • 2 tsk vanilluextract
  • 2-3 msk mjólk til að þynna kremið ef þarf

Aðferð: Þeytið smjörið í 2-3 mínútur eða þar til það hvítnar og verður létt. Bætið flórsykrinum út í og þeytið áfram í 2-3 mínútur. Bætið sítrónusafanum og vanilllunni saman við. Setjið mjólk saman við ef ykkur finnst kremið of þykkt. Dreifið um 1/3 af kreminu á neðri botninn. Leggið þá hinn ofan á og dreifið restinni af kreminu jafnt yfir alla kökuna. Skreytið e.t.v með hökkuðum pekanhnetum eða kókosmjöli.min_IMG_6357min_IMG_6378

Filed Under: Eldhúsperlur

Previous Post: « Uppáhalds ferska salsa sósan – góð með öllu!
Next Post: Toscana súpa »

Reader Interactions

Comments

  1. Katrín Sigurðardóttir

    ágúst 14, 2014 at 12:06

    Þessi er ekkert smá girnileg, krakkarnir mínir mundi ekki fúlsa við þessar

    Svara
  2. Greta

    ágúst 15, 2014 at 23:58

    Hlakka til að prófa þessa! Elska gulrótarkökur.

    Svara
  3. Ólöf

    ágúst 18, 2014 at 13:16

    Gulrótakaka er uppáhalds kakan hjá synim mínum sem er að verða 19 ára, Langar að gefa honum þessa flottu köku á afmælinu 🙂

    Svara
  4. Þuriður

    janúar 21, 2016 at 23:20

    Þessi var bökuð í dag og vissulega er hún góð og sagði maðurinn minn að þetta væri besta gulrótarterta sem hann hefði smakkað, en mér fannst hún altof sæt og var ég þó búin að mínka sykurinn talsvert, þessi verður prufuð aftur og þá mun ég mína sykurinn um ca 50 – 75 % en saðsöm er hún

    Svara
  5. Þuriður

    janúar 23, 2016 at 01:17

    Kakan er virkilega góð en hún er alltof sæt, ætla að prufa að baka hana aftur og mun ég klárlega mínka sikurinn og breita líka kreminu, það er líka alltof sætt

    Svara
  6. Þuríður

    febrúar 22, 2016 at 16:44

    Þetta er í annað skiptið sem ég baka þessa tertu og fannst mér hún altof sæt á bragðið enda sykurmagnið altof mikið að mér finnst, en núna bakaði ég hana afturog setti tæplega 1/2 bolla af sykri (en það á að vera 1og1/2 bolli í uppskriftini, það koma ágætlega út en ég er alveg viss um að það má sleppa sykrinum alveg og bara að nota ananasinn og safan af honum, það er alveg nógur sykur þar,,,, hún er mjög saðsöm

    Svara
    • helenagunnarsd

      febrúar 22, 2016 at 17:29

      Sæl Þuríður

      Já, það má áreiðanlega minnka sykurmagnið mikið í þessari uppskrift sýnist manni svo. Ég byggi uppskriftina á amerískri fyrirmynd og minnkaði sykurinn talsvert frá þeirri upprunalegu. Þessi tiltekna terta gefur sig heldur alls ekki út fyrir að vera sykurlaus eða neins staðar á hollustu línunni 🙂 En sjálfsagt að gera tilraunir. Ég kýs sjálf að minnka sykur talsvert í uppskriftum en ef ég ætlaði að reyna að sleppa sykri myndi ég sennilega baka eitthvað allt annað en þetta.

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  7. Katrín Sigurðardóttir Sonnentag

    ágúst 12, 2018 at 10:20

    Ég bakaði þessa gulrótartertu fyrir helgina og var hún sú besta af öllum gulrótartertum sem ég hef bakað. Ég var ekkert að minnka sykurmagnið(þó ég geri það oft), notaði hrásykur og fannst hún alveg passlega sæt. Þetta er nú líka kaka sem er ekki á borðum daglega :-). Svo var ég með kókosrjóma með henni og þetta var bara æðislega gott. Takk fyrir frábæra uppskrift 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      ágúst 12, 2018 at 12:47

      En gaman að vita! Takk fyrir að deila ☺️

      Svara

Skildu eftir svar við Greta Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme