Áður en þið lesið lengra er kannski best að ég vindi mér strax að umræðuefninu en það er að sjálfsögðu þessi dúnmjúka og unaðslega súkkulaðiterta. Og áður en þið lesið ennþá lengra er kannski best að ég láti ykkur vita strax að það er majónes í henni í staðin fyrir smjör eða olíu. Mér líður allavega strax betur, en ykkur? Málið er semsagt að þessi kaka er sennilega mýksta og besta súkkulaðikaka sem ég hef smakkað og hef ég marga fjöruna sopið í þeim efnum. Ekki hræðast majónesið, það er alveg óþarfi. Majónes hatarar munu aldrei finna bragðið af því og þið munuð gleyma orðinu majónes eftir fyrsta bitann.
Það virðast voða margir vera sífellt að leita að hinni fullkomnu súkkulaðiköku og er ég engin undantekning. Það skal meira að að segja viðurkennast hér með að á tímabili þóttu mér kökur búnar til úr tilbúnu kökumixi úr pakka sennilega bestu súkkulaðikökurnar. Alltaf eitthvað svo mjúkar og djúsí. En eftir smá grúsk á netinu datt ég niður á nokkrar gamaldags amerískar súkkulaðitertu uppskriftir og þar virtist vera mál málanna að notast við majónes, vilji menn mjúka köku sem ekki er þurr. Og það vilja menn auðvitað. Ég notaði ekta súkkulaðikrem ofan á kökuna, sem samanstendur af bræddu súkkulaði og rjóma eða ganache, sem er svo þeytt svo það verði svona loftkennt. Mér finnst stundum of sætt að setja flórsykurs-smjörkrem á svona tertur. Mér finnst svo alveg æðislegt að setja smá sultu á neðri botninn undir súkkulaðikremið. Maður finnur ekki beint fyrir henni en hún gerir alveg gæfumuninn. Þið verðið að prófa þessa köku, hreinlega verðið!
Mjúk amerísk súkkulaðiterta (Bollamálið sem ég nota er 2,4 dl):
- 2 bollar hveiti eða fínmalað spelt
- 2/3 bolli ósætt kakóduft
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- 3 egg
- 1 og 2/3 bolli sykur eða hrásykur
- 1 tsk vanillu extract
- 1 bolli majónes
- 1 og 1/3 bolli vatn
Ofan á og á milli:
- 4 msk jarðarberja eða hindberjasulta
- Þeytt súkkulaði canache krem – Búið til ganache krem, kælið í 1-2 klst í ísskáp, þar til kremið hefur stífnað aðeins. Þeytið svo með handþeytara eða í hrærivél í 1-2 mínútur þar til kremið verður létt og ljóst. Ýtið hér til að sjá uppskriftina!
Aðferð: Byrjið á að hita ofn í 160 gráður með blæstri, annars 180 gráður. Smyrjið tvö 24 cm kökuform og dustið þau með smá hveiti. Af því að ég var með lausbotna form og deigið er ansi fljótandi þykir mér betra að setja álpappír undir formin og upp með hliðunum, svo ekkert leki út. Sigtið saman hveitið, kakóduftið, matarsódann og lyftiduftið. Þeytið eggin, sykurinn og vanilluna á miklum hraða í 3-5 mínútur þar til blandan er orðin ljós og loftkennd. Bætið majónesinu út í og hrærið rólega á meðan. Hér dugar ekki eitthvað létt majónes, það verður að vera alvöru. Setjið þurrefnin og vatnið saman við til skiptis og passið að blanda deiginu vel saman án þess að þeyta það mikið. Deigið verður mjög fljótandi og það er allt í lagi. Hellið deiginu í kökuformin tvö og bakið í 30 mínútur eða þar til tannstöngli sem stungið er í miðja kökuna kemur hreinn upp. Kælið botnana á grind a.m.k í 1 klst.Losið botnana þá úr formunum og leggið annan botninn á tertudisk.
Smyrjið sultunni og 1/3 af súkkulaðikreminu á neðri botninn.Leggið hinn botninn ofan á og smyrjið restinni af kreminu ofan á og á hliðarnar. Skreytið t.d með gamaldags kokteilberjum.Berið fram með bros á vör og njótið –
Rósa
er ekki óhætt að frysta hana þessa?
helenagunnarsd
Sæl Rósa, vonandi kemur svarið ekki of seint. Það er í góðu lagi allavega að fyrsta botnana ef þú vilt gera þá fyrirfram. Kremið veit ég bara ekki alveg hvernig fer í frysti þar sem ég hef ekki prófað að frysta það.
Kveðja, Helena