Ég er búin að vera í hálfgerðu sólarmóki síðan við komum heim frá Tenerife. Ferðin var alveg fullkomin í alla staði, sól og hiti alla daga og auðvitað bara eintóm huggulegheit. Eftir svona gott frí getur nú tekið smá tíma að koma sér af stað aftur og þrátt fyrir mikla löngun í góðan mat eftir heimkomuna hefur nennan ekki verið mikil í eldhúsinu. Er nú samt alveg búin að vera að elda mat en fljótlegheit hafa svolítið einkennt kvöldmatinn síðan við komum heim.
Ég skellti í þennann ljúffenga satay kjúklingarétt í gær. Ef hráefnið er til er sennilega fljótlegra að elda hann heldur en að keyra á næsta tælenska stað og kaupa eitthvað tilbúið. Sannarlega mætti notast við heimalagaða satay sósu í þessum rétti en ég var ekki á þeim buxunum í gær allavega, mér finnst líka fínt að kaupa tilbúna og bragðbæta hana aðeins. Við vorum mjög ánægð með útkomuna, stórir sem smáir og munum sannarlega elda þennan rétt aftur.
Kjúklingur í satay sósu (fyrir 3-4):
- 3 kjúklingabringur, hver bringa skorin í þrennt eftir endilöngu
- 1 msk sojasósa
- 1 krukka satay sósa (ég notaði Blue Dragon)
- 1 ferna kókosmjólk (eða 1/2 dós)
- 1 dl vatn
- 1 msk rifið eða smátt saxað engifer
- 3 vorlaukar smátt saxaðir
- 1 límóna
- Smátt saxaður chilli pipar (má sleppa)
Aðferð: Skerið kjúklingabringurnar niður og veltið upp úr sojasósunni. Steikið kjúklingastrimlana á pönnu á báðum hliðum og takið svo af pönnunni. Hellið satay sósunni, kókosmjólkinni, vatninu og engifer á pönnuna og látið suðuna koma upp. Smakkið til með sojasósu, nýmöluðum pipar og safa úr 1/2 límónu. Setjið kjúklingastrimlana út í og látið malla þar til kjötið er eldað í gegn. Berið fram með límónubátum, söxuðum vorlauk og chillipipar og basmati hrísgrjónum.
Tinna
Ótrúlega einfalt og gott
helenagunnarsd
Takk fyrir það Tinna 🙂 Já þessi réttur stendur alltaf fyrir sínu