Mér finnst alveg frábær tilbreyting frá grilltíð sem einkennist oft og tíðum af dálítið miklu kjöti, að sneiða hjá kjötmáltíðum og bera á borð kvöldmat sem inniheldur einungis grænmeti. Ég tala nú ekki um núna þegar fer að líða á ágúst mánuð og íslenskt grænmeti fer að fylla grænmetiskæla matvöruverslana. Ég get nú reyndar ekki státað mig af því að hafa notað eingöngu íslenskt grænmeti í þennan rétt, en góður var hann. Ég lét hann standa algjörlega einan og sér sem kvöldmat á dögunum og fannst avacado teningarnir alveg gera útslagið í að skila okkur mettandi og góðum kvöldverði. Ég hvet ykkur til að prófa að hafa grænmetisrétt á borðum allavega einu sinni í viku ef þið hafið ekki vanist því. Það er bæði hagstætt og ljúffengt og alltaf upplagt að nota til dæmis grænmetisafganga sem liggja óhreyfðir í grænmetisskúffunni í staðin fyrir að henda þeim. Ég notaði hreint kúskús í þennan rétt sem ég kryddaði sjálf. Það væri líka vel hægt að kaupa tilbúið kryddað kúskús. Prófið bara!
Bragðmikið kúskús salat með ofnbökuðu grænmeti, lárperu og parmesan osti (fyrir 3-4):
- 200 gr hreint kúskús – kryddað með 1 tsk oregano, 1 tsk paprikukryddi, 1/4 tsk kanil, 1 tsk grófu sjávarsalti, 1/2 tsk svörtum pipar, 1/2 tsk cummin, 1/2 tsk kóríander og 1/4 tsk þurrkuðum chilliflögum (líka hægt að nota kryddað kúskús)
- 1 -2 öskjur konfekt tómatar eða piccolo tómatar (magn fer þó eftir smekk)
- 2 vænir rauðlaukar
- 1 msk ólífuolía
- 2 msk balsamikedik
- 1 msk hunang
- Sjávarsalt og pipar
- Nokkrar sneiðar grilluð marineruð paprika úr krukku (líka hægt að nota t.d þistilhjörtu eða ólifur)
- 2 lárperur
- Rifinn ferskur parmesan ostur
- Góð lúka fersk steinselja og graslaukur, smátt saxað
- 1 sítróna skorin í báta
Aðferð: Hitið ofn í 220 gráður. Byrjið á að setja kúskúsið í skál og krydda það. Blandið vel saman. Hellið sjóðandi vatni yfir kúskúsið. Ég mæli aldrei vatnið heldur helli þar til vatnið þekur alveg kúskúsið og nær ca. 1/2 cm yfir það. Leggið disk eða plastfilmu yfir skálina og látið standa í 10 mínútur eða á meðan þið gerið restina af réttinum. Skerið laukinn í tvennt og svo í dálítið þykkar sneiðar. Skerið tómatana í tvennt. Setjið laukinn og tómatana á bökunarplötu. Hellið ólífuolíu, balsamikediki og hunangi yfir, saltið og piprið og veltið grænmetinu vel uppúr. Bakið í 10-15 mínútur eða þar til laukurinn hefur tekið lit og karamelliserast í hunangs-edik blöndunni. Skerið grilluðu paprikuna í strimla. Ýfið kúskúsið upp með gaffli og hellið því á fat. Setjið grænmetið yfir og blandið aðeins saman. Skerið lárperuna í teninga og dreifið yfir ásamt vel af rifnum parmesan osti og saxaðri steinselju og graslauk. Kreistið smá sítrónusafa yfir og berið fram með sítrónubátum.
Sara Elísabet og Ási :)
sjúklega gott þetta ! Þetta verður gert oftar! 😀
helenagunnarsd
Frábært, ég er voða hrifin af þessu sjálf 😉
Elfa
Ofboðslega gott salat, gerði það sem meðlæti með ofnbökuðum lúðusteikum, alveg hreint brilljant!