Ég hef játað mig sigraða og verð nú að horfast í augu við myrkur á kvöldmatartíma. Þar sem ég hef ekki tök á að elda mat eða baka á daginn nema einstaka sinnum er þetta óhjákvæmlegur fylgifiskur vetrarins. Mér þykir bara svo gaman að deila með ykkur uppskriftum þegar vel tekst til að ég læt mig hafa það að mynda matinn undir eldhúsljósunum. Þið harkið bara af ykkur. Þessi kjúklingaréttur flokkast sannarlega undir mat sem tókst vel. Sunna systir sagði mér á dögunum frá kjúklingarétti sem hún hafði fengið hjá vinkonu sinni, rétturinn var svo góður að hún hafði ekki getað hætt að hugsa um hann.
Það er skemmst frá því að segja að aðeins eru nokkrir dagar síðan hún sagði mér frá réttinum en samt er ég búin að elda hann tvisvar. Þetta er nýjasta æðið! Ég get svo svarið það. Rétturinn er ótrúlega einfaldur en galdurinn er marineringin á hann. Chillimaukið Sambal oelek blandað saman við dijon sinnep og sítrónu er hættulega góð samsetning og eiginlega ávanabindandi. Ég get því ekki annað en þakkað Árdísi vinkonu fyrir hugmyndina að snilldarmarineringu á kjúkling og mælt með því að þið prófið. Ég bjó til marokkóskt kúskús salat sem meðlæti í þetta skiptið sem mér fannst smellpassa við bragðmikinn kjúklinginn.
Kjúklingurinn (fyrir 5):
- 1 kg úrbeinuð kjúklingalæri
- 2 msk Sambal oelek chillimauk
- 1 msk dijon sinnep (ég notaði hunangsdijon og venjulegt til helminga)
- 2 msk ólífuolía
- 1 tsk gott sjávarsalt
- Nýmalaður svartur pipar
- 3 msk fetaostur
- 1 sítróna skorin í báta
Aðferð: Hitið ofn í 200 gráður. Hærið saman chillimauki, dijon sinnepi, ólífuolíu, salti og pipar. Makið þessu vel á kjúklingalærin og leggið þau í eldfast mót. Stingið sítrónubátum inn á milli kjúklingabitanna, stráið fetaostinum yfir og bakið í 30 mínútur. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum gerið þið svo kúskúsið tilbúið.
Kúskús og meðlætið:
- 200 gr kryddað kúskús
- 10 þurrkaðar apríkósur
- 50 gr ristaðar möndluflögur
- 2 tómatar skornir í grófa bita
- 1 lítill rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar
- 1/2 rauður chilli smátt skorinn
- Ferskt saxað kóríander eða steinselja til skrauts (má sleppa)
Aðferð: Eldið kúskúsið skv. leiðbeiningum á pakkanum. Ég hellti því bara í eldfasta mótið sem ég notaði til að bera matinn fram, stráði apríkósunum yfir og hellti sjóðandi heitu vatni þar til rétt flaut yfir. Ristið möndluflögurnar á þurri pönnu en gætið þess að brenna þær ekki. Hafið pönnuna á meðalhita. Þegar kúskúsið er tilbúið, hrærið það upp með gaffli og stráið möndlunum yfir. Leggið kjúklingalærin ofan á kúskúsið, hellið soðinu úr fatinu yfir og kreistið bakaðar sítrónurnar líka yfir. Dreifið tómatabitunum og rauðlauknum yfir að lokum og stráið e.t.v yfir ferskum kóríander eða steinselju, möndluflögum, chilli og smá fetaosti.Berið fram og njótið !
Elsa
Góða kvöldið , lítur ekkert smá vel út , ein spurning, hvar færðu
Chili maukið
helenagunnarsd
Sæl Elsa
Ég fæ chillimaukið t.d í Bónus. Það er frá Santa Maria, heitir Sambal Oelek og er oftast í hillunum nálægt mango chutney, sojasósu, pestó o.s.frv. Gangi þér vel 🙂
Kær kveðja, Helena