• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Eldhúsperlur logo

  • Uppskriftir
    • Allar færslur
  • Innblástur
  • Um síðuna
  • Navigation Menu: Social Icons

    • Facebook
    • Instagram
    • Pinterest
    • RSS
    • Snapchat
    • Twitter

Pistasíu- marsipansnúðar með hvítu súkkulaði

október 4, 2014 by helenagunnarsd 6 Comments

min_IMG_6598Marsipan manía – Það mætti sennilega greina mig með eitthvað svoleiðis. Ég e.l.s.k.a. marsipan og allt sem því viðkemur og hef gert frá því að ég man eftir mér. Hér inni eru nokkrar uppskriftir sem innihalda þessa guðafæðu en ég er ekki frá því að það mætti bæta hressilega við það safn. Ég hef annars legið í flensu í síðustu daga og lítið annað gert en að hósta og vorkenna sjálfri mér á milli pústa. Þolinmæðin brást því þennan föstudagsseinnipart og iðjuleysið vék fyrir bakstri dásamlega ljúffengra pistasíu- marsipan snúða. Ég var himinsæl með útkomuna. Þetta minnir mann á gott bakarís bakkelsi nema eiginlega bara ennþá betra. Svo veit maður líka nákvæmega hvað er í bakkelsinu. Ég er svona almennt ekki mikið fyrir gerbakstur svo ég geri alltaf snúða með lyftidufti sem eru samt mjúkir og góðir. Þó svo að ég baki alltaf úr spelti og vínsteinslyftidufti er ágætt að taka það fram að því má auðvitað skipta út fyrir hveiti eða annað mjöl, og venjulegt lyftiduft. Ég gæti ekki mælt meira með þessum snúðum, prófið að baka þá kæru vinir!min_IMG_6603

Pistasíu- marsipansnúðar með hvítu súkkulaði (ca. 24 snúðar):

  • 5 dl fínmalað spelt (meira til að hnoða og fletja út)
  • 4 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1/4 tsk salt
  • 3 msk hrásykur
  • 75 gr smjör
  • 2 dl ab mjólk eða hrein jógúrt
  • Fylling:
  • 200 gr Odense desertmassi með pistasíubragði (eða venjulegt mjúkt marsipan)
  • 4 msk brætt smjör
  • 4 msk hrásykur
  • 2-3 msk birkifræ
  • Ofaná:
  • 100 gr hvítir Odense súkkulaðidropar

min_IMG_6579Aðferð: Hitið ofn í 170 gráður með blæstri, annars 180 gráður. Blandið saman í hrærivélaskál, spelti, lyftidufti, salti og sykri. Klípið smjörið út í í litlum bitum. (Ágætt að það sé ekki alveg ískalt heldur búið að standa við stofuhita í ca. 1 klst). Hellið ab mjólkinni saman við og vinnið saman þar til gott deigið er komið. Gætið þess þó að hnoða ekki of lengi. Stráið vel af spelti á borðplötu og hnoðið deigið aðeins þannig að það sé ekki klístrað og gott sé að fletja það út. min_IMG_6574Fletjið deigið út í ílangan ferhyrning. Athugið að deigið er dálítið blautt og viðkvæmt fyrir miklu hnjaski. Passið því að hafa borðið vel hveiti/spelt stráð.min_IMG_6578

Hrærið saman bræddu smjöri og pistasíu marsipaninu þannig að marsipanið mýkist aðeins. Dreifið blöndunni eins jafnt og mögulegt er yfir deigið. Ágætt að nota bakið á matskeið eða lítinn spaða og allt í lagi þó það séu smá marsipan klessur hér og hvar. Stráið svo hrásykrinum yfir ásamt birkifræunum. Rúllið upp og skerið í ca. 2-2.5 cm þykka snúða. min_IMG_6581Raðið á bökunarplötu og bakið í 12-15 mínútur eða þar til gullinbrúnir en ennþá svolítið mjúkir í miðjunni. Færið af plötunni og látið kólna alveg.min_IMG_6605 Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaðið eða í potti við mjög vægan hita. Dreifið því yfir með því að dýfa teskeið í súkkulaðið og láta það leka yfir snúðana í mjóum ræmum. min_IMG_6603Gott er að geyma snúðana í lokuðu íláti í 2-3 daga. Annars eru þeir auðvitað langbestir nýbakaðir.min_IMG_6613

Filed Under: Eldhúsperlur

Previous Post: « Hollari hafraklattar með banana og hnetusmjöri
Next Post: Grænt pestó penne »

Reader Interactions

Comments

  1. Nafnlaust

    október 4, 2014 at 13:00

    Góðan og glaðan bökunnar daginn..Og takk fyrir allar dásemd irnar hvernig heldurðu að þetta yrði ef það væri notað lifandi ger í staðin fyrir lyftiduftið.?

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 4, 2014 at 13:10

      Nú veit ég ekki 🙂 Ef þú er vön/vanur að vinna með ger er örugglega gaman að prófa. Ég er hins vegar voða lítið fyrir að nota ger, finnst bæði þægilegra og betra að nota lyftiduft. Ef þú prófar máttu endilega leyfa mér að vita hvernig það lukkaðist.

      Kær kveðja, Helena

      Svara
  2. Nafnlaust

    október 4, 2014 at 20:50

    Mæli með að þú prófir gerið, þá verður sko ekki aftur snúið 😉

    Svara
    • helenagunnarsd

      október 4, 2014 at 22:01

      Njaa.. ég er bara almennt ekkert svo hoppandi hrifin af gerbakstri. En veit að margir eru ósammála mér þar 😉 Nota það alveg af og til en bið eftir að eitthvað hefist og mæling á hitastigi og þessháttar nákvæmni er ekki alveg minn tebolli. En það á vissulega stundum við 🙂

      Svara
  3. Katrín Sigurðardóttir

    desember 10, 2014 at 17:16

    Bakaði þessa æðislegu góðu mjúku snúða í dag. Ég notaði eins og þú spelt og vínsteinslyftiduft en var með repjuolíu í staðin fyrir smjör í deginu :-). Held ég baki þessa fljótt aftur 🙂

    Svara
    • helenagunnarsd

      desember 10, 2014 at 19:50

      En gaman að vita Katrín 🙂 Takk fyrir kveðjuna.

      Kveðja, Helena

      Svara

Skildu eftir svar við helenagunnarsd Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Primary Sidebar

Instagram

Fylgdu mér!

Hafðu samband

Sendu mér tölvupóst!

Nýlegar færslur

  • Dökk og dúnmjúk skúffukaka með smjörkremi
  • Peruterta
  • Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu
  • Möndluterta með vanillukremi og jarðarberjum
  • Vatnsdeigsbollur 101
sjá allar færslur

Færslusafn

  • september 2023
  • mars 2023
  • maí 2022
  • febrúar 2022
  • janúar 2022
  • júní 2021
  • desember 2020
  • maí 2020
  • apríl 2020
  • nóvember 2019
  • mars 2019
  • febrúar 2019
  • desember 2018
  • nóvember 2018
  • júlí 2018
  • maí 2017
  • nóvember 2016
  • ágúst 2016
  • júlí 2016
  • apríl 2016
  • mars 2016
  • janúar 2016
  • desember 2015
  • nóvember 2015
  • september 2015
  • ágúst 2015
  • júlí 2015
  • júní 2015
  • maí 2015
  • mars 2015
  • janúar 2015
  • nóvember 2014
  • október 2014
  • september 2014
  • ágúst 2014
  • júlí 2014
  • júní 2014
  • maí 2014
  • apríl 2014
  • mars 2014
  • febrúar 2014
  • janúar 2014
  • desember 2013
  • nóvember 2013
  • október 2013
  • september 2013
  • ágúst 2013
  • júlí 2013
  • júní 2013
  • maí 2013
  • apríl 2013
  • mars 2013
  • febrúar 2013
  • janúar 2013
  • desember 2012
  • nóvember 2012
save 20% at feastdesignco.com

Footer

Instagram did not return a 200.
sjá allar færslur

Copyright © 2025 Eldhúsperlur on the Foodie Pro Theme